Oh nei!! Ég er að fara vera seinn!! Ég er að hlaupa eins hratt og ég get á meðan allir stara á gull litað andlitið mitt og hugsa um hversu heitur ég er *sigh* það er svo erfitt... Ég opna dyrnar og þarna er hann Bónus að stara á mig og brosir til mín. "A-afsakið að ég er seinn" segji ég en hann svarar mér ekki og í staðinn kyssir mig á ennið. "Shh bbg" við horfum á hvort annað og hjartað mitt var að springa. Engin mátti vita að ég og Bónus vorum að deita því þá mættum við aldrei sjá hvort annað aftur.
"Krónan og Bónus" þegar fólk heyrir þetta hugsa þau um tvær búðir sem eru alltaf að keppa um að vera betri en það er langt frá því. Einu sinni var það satt þegar ég og Bónus hötuðum hvort annað út af fólkinu í kringum okkur vildu það en eftir að ég byrjaði að tala við Bónus gat ég ekki hatað hann. Hann er með augu sem glansa eins og tunglið og vöðvamikin búk sem gæti farið í gegnum vegg. Núna hittumst við alltaf inni í herbergi sem engin notar til að "spjalla" .
"Hvað er að króna?" Segjir hann og stýkur á mér hárið (já krónan hefur hár). "Ekkert er bara að hugsa" Allt í einu tekur Bónus mig upp og ég öskra "Ah! Bónus hvað ertu að geta?!?" Hann setur mig niður á sófa og byrjar að narta í mig. Eina sem ég gat gert var að horfa á hann með spurningarmerki í augun á mér. Allt í einu hætti hann og sagði "ertu viss um að þú ert ekki súkkulaði peningur? Út af hversu sætur þú ert" áður en ég gat svarað fór hann ofan á mig og kyssti mig. Þetta var svo sexy en allt í einu heyrðist í dyrunum opna. Hvað gerist nú? 😰...